02

Eiko Ojala

Estonia

Hvað eru sýklalyf og til hvers eru þau notuð?

Sýklalyf eru lífsbjörg sem gjörbylti samfélagi okkar. Sjúkdómar sem voru áður banvænir urðu hættulitlir og viðráðanlegir með einfaldri meðferð. Sýklalyf eru notuð til að meðhöndla bakteríusýkingar. Þau drepa eða hindra vöxt baktería sem valda veikindum hjá fólki og dýrum.

“Ég vil beina kastljósinu að hlutum sem við göngum oft að sem vísum í daglega lífinu. Rétt eins og rafmagn á heimilum voru sýklalyf óhugsandi fyrir einni öld síðan. Núna er oft hægt að meðhöndla sjúkdóma sem áður virtust banvænir og óhjákvæmilegir. Því býð ég áhorfandanum að doka við og dýfa sér inn í þennan litríka og fjölbreytta heim og hugsa um ósýnilegu hjálparhellurnar sem gera þetta allt mögulegt.”