Gatis Sluka
Latvia
Sýklalyf eru hönnuð til að berjast gegn bakteríum, ekki veirum. Þau geta ekki hjálpað til við kvef, flensur eða flestar hálsbólgur. Að taka þau að óþörfu hjálpar okkur ekki að batna en gefur bakteríum í líkama okkar tækifæri til að verða ónæmar og þannig erfiðari að meðhöndla.
„Það er mikilvægt að skilja að sýklalyf hafa engin áhrif á veirur, aðeins bakteríur. Því ætti að nota sýklalyf á ábyrgan hátt og aðeins þegar nauðsyn krefur.
Ég sá fyrir mér veitingastað og ímyndaði mér veirur finna sýklalyf við matarborðið. Ef einhver heldur að hægt sé að skaða veirur með því að fóðra þær á sýklalyfjum þá skjátlast þeim. Veirur vita ekki einu sinni hvað þær eiga að gera við sýklalyfin.“