Alfie Gatt
Malta
Taktu aldrei sýklalyf sem hefur verið ávísað fyrir einhvern annan nema þú hafir ráðfært þig við heilbrigðisstarfsmann, og gefðu lyfin þín aldrei gæludýri. Hver lyfseðill er sérsniðinn að ákveðinni sýkingu og einstaklingi. Notkun rangra lyfja getur seinkað bata, valdið aukaverkunum og stuðlað að myndun ónæmra örvera sem erfiðara er að meðhöndla.
“Þessi mynd sýnir hvernig meðferð er ávallt sérsniðin að hverjum einstaklingi. Andlitsmyndirnar tvær renna saman í eina, en umgjörð þeirra er mjög ólík; ein hefur skrælnaðar trjágreinar sem tákna misnotkun og þann skaða sem hún getur valdið, á meðan hin sýnir útsprungin blóm sem tákna rétta meðferð og þann frið og bata sem hún veitir. Þessar andstæður sýna skýrt að það sem virkar fyrir einn virkar ekki endilega fyrir annan. Lyfjameðferð er einstaklingsbundin og lyfjum ætti ekki að deila með öðrum.”