Skissum sýklalyfjaónæmi
Thirty stories, One Health
Innra með okkur býr ævaforn, ósýnilegur og lifandi heimur. Þessi innri heimur samanstendur af örverum sem hjálpa okkur að melta fæðuna, vernda húðina og stuðla að jafnvægi vistkerfa. Þær flestar lifa í sátt og samlyndi við okkur en sumar geta þó valdið sjúkdómum. Eins og aðrar lífverur þróast þær og laga sig sífellt að aðstæðum í lífsbaráttu sinni. En þegar þær aðlagast lyfjum sem eiga að halda þeim í skefjum verður afleiðingin ein stærsta heilbrigðisáskorun samtímans: Sýklalyfjaónæmi.
Þessi sýning er boð um að staldra við og uppgötva fegurðina í jafnvægi örveruheimsins og hvernig við getum varðveitt það. 30 listamenn. 30 lönd. Hver mynd og skilaboð er kafli í þessari sameinilegri sögu, sem tilheyrir okkur öllum.
Því með því að vernda sýklalyfin okkar erum við að vernda lífið sjálft.