Elskum sýklalyfin okkar

Um EU-JAMRAI 2

Elskum sýklalyfin okkar, dreifum boðskapnum og hvetjum aðra til þátttöku!

Sýklalyf eru meðal allra merkustu uppgötvana mannkyns. Þessi dýrmætu lyf hafa gert fólki og dýrum kleift að lifa lengur og við betri heilsu. En sýklalyf eru að tapa virkni sinni. Því betur sem fólk skilur hvað er að gerast, því betur getum við sameinast um aðgerðir til að vernda kraft lyfjanna. Með því að miðla þekkingu okkar og styðja við ábyrga notkun sýklalyfja tryggjum við að þessi lífsnauðsynlegu lyf haldist áhrifarík – fyrir okkur, komandi kynslóðir og jörðina.

Gakktu til liðs við alþjóðlegt samfélag táknsins fyrir sýklalyfjaónæmi!

  • HYLKI Táknar sýklalyfin
  • HJARTA Þetta er okkar hjartans mál
  • PLÁSTRAR Finnum lausnir

ELSKUM SÝKLALYFIN OKKAR!

Um EU-JAMRAI 2

EU-JAMRAI 2 er sameiginleg skuldbinding um að vernda lyfin sem vernda okkur. Verkefnið sameinar vísindafólk, lækna, dýralækna, bændur, sérfræðinga í umhverfismálum, stefnumótendur og almenning víðs vegar um Evrópu um eitt sameiginlegt markmið sem er að hægja á útbreiðslu sýklalyfjaónæmis og vernda þannig heilsu komandi kynslóða.

EU-JAMRAI-2 er hluti af víðtækara átaki Evrópusambandsins sem á að gera Evrópu að fyrirmyndarsvæði þegar kemur að viðbrögðum við þessari alþjóðlegu áskorun. Með samvinnu, þekkingu og skynsamlegum aðgerðum getum við sameinast um að vernda heilbrigði, nú og til framtíðar.
Verkefnið byggir á vel heppnuðum fyrsta áfanga EU-JAMRAI. Samstarfið hefur nú verið eflt enn frekar með Einnar heilsu nálgun, sem leggur áherslu á að heilsa fólks, dýra og umhverfis sé órjúfanlega tengd. Markmið þess takmarkast ekki við rannsóknir og stefnumótun heldur snýst verkefnið um að byggja brýr á milli vísinda og samfélagsins, og á milli daglegra venja og alþjóðlegrar þróunar.

Með EU-JAMRAI 2 umbreytir Evrópa vísindum í samvinnu og samvinnu í umhyggju. Þetta minnir okkur á að heilsa okkar, heilsa dýra og heilsa jarðarinnar eru samofin. Aðeins með sameiginlegu átaki getum við varðveitt það viðkvæma jafnvægi sem viðheldur lífinu.

Fjármögnun

EU-JAMRAI 2 (Evrópsk sameiginleg aðgerð gegn sýklalyfjaónæmi og sýkingum tengdum heilbrigðisþjónustu) er styrkt af EU4Health áætlun Evrópusambandsins, samkvæmt styrksamningi nr. 101127787.