Ale Giorgini
Italy
Bakteríur og aðrar örverur eru magnaðar lífverur sem aðlagast og þróast til að lifa af. Með stökkbreytingum eða með því að skiptast á erfðaefni geta þær þróað og áunnið sér nýja eiginleika sem gera þær ónæmar fyrir sýklalyfjum sem ætlað er að drepa þær. Með þessu náttúrulega ferli geta nýjar ofurbakteríur dafnað og breiðst út.
“Myndin sýnir á einfaldan hátt hvernig bakteríur og aðrar örverur stökkbreytast til að lifa af. Með því að skiptast á erfðaefnisbútum (DNA) sín á milli verða til nýjar gerðir baktería sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum (innan útlínu mannslíkamans). Þessar ónæmu bakteríur lifa af, þrátt fyrir opna lyfjahylkið, því sýklalyf hafa engin áhrif á þær.”