05

Mészely Ilka

Hungary

Náttúrulegt ferli sem mannfólk hefur flýtt fyrir

Sýklalyfjaónæmi er náttúrulegt ferli en athafnir okkar hraða því. Sýklalyf eru oft notuð á rangan hátt fyrir fólk, dýr og plöntur. Því oftar sem við notum þau, því fleiri tækifæri fá bakteríur og aðrar örverur til að verða að ónæmum ofurbakteríum. Eigum við þá að hætta að nota sýklalyf? Nei alls ekki! En við megum eingöngu nota þau þegar raunveruleg þörf er á og fylgja ráðleggingum fagaðila.

“Þó sýklalyfjaónæmi sé náttúrulegt ferli, flýta athafnir okkar manna fyrir því. Hylkin sem renna út úr höndunum tákna vanmátt okkar að hafa fulla stjórn á áhrifum sýklalyfja, sem getur leitt til tilkomu ofurbaktería. Því ákafar sem við berjumst gegn bakteríum og öðrum örverum, því mikilvægara er að tryggja rétta notkun sýklalyfja.”