Teodor Hristov
Bulgaria
Heilsa dýra, fólks og umhverfis er samofinn og flókinn vefur. Við deilum landi, auðlindum og örverum. Þar sem meira en 60% örvera sem valda sjúkdómum í fólki rekja rætur sínar til búfénaðar eða villtra dýra er heilsuvernd dýra og umhverfis líka heilsuvernd fyrir fólk. Baráttan við sýklalyfjaónæmi krefst samhæfðrar „Einnar heilsu“ nálgunar sem tekur tillit til allra þessa þátta.
“Fólki hættir til að gleyma að við lifum í vistkerfi þar sem öll dýr, plöntur og fólk deila sameiginlegum auðlindum. Við erum hluti af þessum heimi rétt eins og hann er hluti af okkur.
Heilsa okkar og velferð eru nátengd náttúrunni og öllum lifandi verum umhverfis okkur. Þetta er vingjarnleg áminning um að meta plánetuna okkar að verðleikum og lifa í sátt við hana, en ekki halda áfram að gjörnýta og menga auðlindir hennar.”