08

Lisa Junius

Luxembourg

Sýklalyfjaónæmi ógnar heilbrigði í heiminum öllum

Við erum að verða uppiskroppa með úrræði til að lækna alvarlegar sýkingar hjá fólki, dýrum og plöntum. Á hverju ári deyja 1,2 milljónir manna vegna sýklalyfjaónæmis; jafnmargir og deyja samanlagt árlega af völdum HIV/alnæmis og malaríu. Að öllu óbreyttu munu 39 milljónir manna deyja vegna sýklalyfjaónæmis fram til ársins 2050.

„Líkami þessarar konu er eins og vog eða mælikvarði á ógnina sem steðjar að okkur á alþjóðavísu. Andspænis sýklalyfjunum innan í henni standa bakteríur sem verða sterkari og ónæmari og ógna þannig heilsu hennar og okkar allra.”