Melpomeni Chatzipanagiotou
Greece
Ímyndaðu þér heim án líffæragjafa eða skurðaðgerða… Án öflugra sýklalyfja til að meðhöndla sýkingar gætu lífsnauðsynleg inngrip eins og líffæragjafir, krabbameinsmeðferðir og skurðaðgerðir orðið stórhættulegar.
„Að ímynda sér heim án nútímalækninga… það væri dapurlegur heimur.
Á teikningunni má sjá birtingarmyndir lífsins, plöntur í blóma og fiðrildi sem tákna endurfæðingu. Einnig dauðann, brothætt lífið, brostnar vonir og ónýt lækningatæki. Stundaglasið minnir á hvernig ákvarðanir og valkostir geta kostað bæði tíma og líf.”
Athyglin beinist að tveimur ólíkum herbergjum sem endurspegla kosti og galla, ljós og myrkur, von og ótta. Þannig birtist sýklalyfjaónæmi sem ekki einungis líffræðilegt fyrirbæri heldur sem skuggaleg ógn við framfarir í læknavísindum, lífsbjargandi meðferðir, algeng inngrip og heilbrigði í veröldinni allri.“