Anastasia Suvorova
Cyprus
Sýkingar af völdum ónæmra sýkla þýða lengri veikindi, færri meðferðarmöguleika og lengri dvalir á sjúkrahúsum. Allt þetta eykur álag á heilbrigðiskerfið og hækkar kostnað við heilbrigðisþjónustu fyrir samfélagið. Í Evrópu einni kostar meðhöndlun sýkinga af völdum ónæmra örvera nær 12 milljarða evra á ári, að meðtalinni aukinni heilbrigðisþjónustu og tapi á framleiðni.
„Byrði ónæmisins. Hafalda sýklalyfja og annarra úrræða þrýstir á viðkvæma veggi sjúkrahúsa. Hver meðferð, hver atrenna að bata, hver glíma gegn ónæmi felur í sér kostnað.
Að baki sérhvers bata eru tími, úrræði og hulin vinna fólks sem hjálpar við varðveislu lífs. Með vaxandi ónæmi tekur bati lengri tíma og aukinn kostnaður skapar álag á innviði heilbrigðisþjónustunnar. Brothætt ljós þessarar byrðar snertir okkur öll, á sjúkrahúsum, á heimilum og í ósýnilegum hrynjanda hins daglega lífs. Að gæta þessa ljós er að vernda það sem heldur okkur á lífi.“