12

Zuzu Galova

Slovakia

Sýklalyfjaónæmi ógnar matvælaöryggi

Ónæmar sýkingar í búfénaði krefjast dýrari meðferða og valda framleiðslutapi sem ógnar matvælaöryggi. Ef við bregðumst ekki við núna mun sýklalyfjaónæmi valda tapi á matvælaframleiðslu sem samsvarar ársneyslu tveggja milljarða manna fyrir árið 2050. Það er um það bil ein manneskja af hverjum fimm, gangi mannfjöldaspár eftir.

“Dómínó myndlíkingin sýnir hvernig sýklalyfjaónæmi getur skaðað fæðukeðjuna. Þegar ónæmis verður vart breiðast áhrifin frá framleiðslu matvælanna inn á matarborðin okkar. Fallandi kubburinn endurspeglar að stjórnlaust sýklalyfjaónæmi gæti grafið undan matvælaöryggi heimsins og haft ógnvænleg áhrif á lífskjör og velferð milljarða fólks. Þessi keðjuverkun sýnir hversu viðkvæmt kerfið er. Þegar einn kubbur fellur, fylgja hinir fljótt á eftir.”