Bodil Jane
Netherlands
Ónæmar bakteríur og aðrar ofurbakteríur geta sýkt hunda, ketti og önnur gæludýr og stofnað heilsu þeirra í hættu. Í sumum tilfellum þurfa dýrin öflugri eða langvinnari meðferð sem getur verið kostnaðarsöm og streituvaldandi. Þessar ónæmu bakteríur geta einnig borist á milli gæludýra og fólks (í báðar áttir) sem er áminning um hversu samofin heilsa okkar er.
“Við elskum gæludýrin okkar og þau eru hluti af fjölskyldunni! Því nánara sambýli við þessa félaga okkar, því betur þurfum við að huga að hreinlæti. Myndin sýnir margháttað samband okkar við dýrin, tilfinningalegt jafnt sem áþreifanlegt. Vegna þessa geta ónæmar bakteríur auðveldlega ferðast á milli okkar.”