14

Matti Pikkujämsä

Finland

Sýklalyfjaónæmi breiðist út í náttúrunni

Sýklalyfjaleifar, ónæmar örverur og ónæmisgen berast út í náttúruna með manngerðum úrgangi, til dæmis með frárennslisvatni frá sjúkrahúsum og bóndabæjum, iðnaðarmengun eða rangri förgun lyfja. Rétt meðhöndlun á úrgangi er nauðsynleg til að hindra að hann berist aftur til fólks og dýra með matvælum, vatni eða beinni snertingu við jarðveg og auki þannig hættu á smiti.

“Myndin mín, handmáluð með akrílmálningu, undirstrikar sakleysi og hreinleika náttúrunnar, sem og varnaleysi hennar gagnvart sýklalyfjaónæmi. Myndin sýnir hvernig mannlegt athæfi og óviðeigandi förgun lyfjaúrgangs getur á hljóðlátan hátt borið ónæmar örverur út í umhverfið okkar.”