Anja Sušanj
Croatia
Ónæmar bakteríur og aðrar örverur hafa fundist í fuglum, fiskum og villtum spendýrum, jafnvel á afskekktum náttúrulegum svæðum. Þetta sýnir hvernig ofurbakteríur geta dreifst um vistkerfin sem virka sem hýslar fyrir ónæmi sem getur svo borist aftur til fólks eða annarra dýra.
„Við hugsum oft um villta náttúru sem aðskilið, lokað kerfi sem tengist ekki annasömu lífi okkar í borgum og bústöðum. Við látum eins og líf okkar séu sem aðskilin hvel sem aldrei skarist, sérstaklega þegar kemur að heilsu.
Snjókúlan virðist við fyrstu sýn vera lokað kerfi sem við getum hvorki komist að né breytt. En þegar kúlan er hrist birtast snjókorn sem þyrlast um kúluna. Hreyfing snjókornanna verður til vegna utanaðkomandi krafta sem breyta öllu. Snjókúlan er brotin til að undirstrika að þessi
vistkerfi eru í raun ekki eins aðskilin og þau virðast.“