Hugo van der Ding
Portugal
Sýklalyf eru nauðsynleg til að vernda heilsu okkar. Hins vegar getur ofnotkun eða röng notkun, hvort sem er fyrir fólk, dýr eða plöntur, skapað kjöraðstæður fyrir þróun nýrra ofurbaktería. Sýklalyf sem notuð eru á rangan hátt geta gert meiri skaða en gagn. Með því að nota þau aðeins þegar nauðsyn krefur – og alltaf samkvæmt ráðleggingum fagaðila – hægjum við á myndun og útbreiðslu ofurbaktería og verndum heilsu fólks, dýra, plantna og umhverfis.
„Á þessari mynd er sýklalyfinu stillt upp sem meistaraverki á listasafni, líkt og Mónu Lísu á Louvre safninu. Mannfjöldi safnast saman til að dást að því, agndofa yfir tímalausri fegurð þess, ómetanlegu verðmæti og þeirri gæslu sem það krefst. Rétt eins og við viljum varðveita stórkostleg listaverk til framtíðar verðum við að hlúa að sýklalyfjum sem bjarga mannslífum. Vísindamenn, líkt og frægir listamenn, hafa skapað þessi verðmæti og það er á okkar ábyrgð að vernda verk þeirra svo þau haldi verðmæti sínu fyrir komandi kynslóðir.“