23

72 kilos

Spain

Hreinar hendur bjarga lífum

Reglulegur handþvottur – áður en þú eldar eða borðar, eftir að hafa notað salerni, snert dýr eða verið úti við – getur stöðvað sýkingar áður en þær ná sér á flug. Hvar sem við erum stödd – heima, á heilbrigðisstofnunum, á bóndabæjum, í skólum eða í eldhúsum – er handþvottur einföld en öflug leið til að vernda fólk, dýr og sameiginlega heilsu okkar.

„Við erum þessar 300 milljónir baktería sem búa á höndunum þínum — og við völdum mörgum sjúkdómum sem þú reynir síðar að lækna með lyfjum. Og ég er Luca. Ég er sex ára gamall og ætla að þvo hendurnar mínar mjög vel. Bless, bless.“

„Handþvottur er eitthvað svo hversdagslegur að það er eiginlega ótrúlegt hversu mikið hann getur hjálpað við að leysa svona stóran vanda. Mér fannst það góð hugmynd að láta eitt af börnunum mínum tala við þessar 300 milljón örvera sem við höfum á óhreinum höndum okkar. Barnið táknar allt fólkið í Evrópu á snilldarlegan hátt.“