Cécile Dormeau
France
Einfaldar venjur eins og að þvo hendur fyrir og á meðan matargerð stendur, halda yfirborðsflötum og áhöldum hreinum, aðskilja hráar og eldaðar matvörur til að forðast krossmengun, fullelda kjöt, egg og sjávarrétti, geyma fersk matvæli í kæli og þvo ávexti og grænmeti vel, hjálpa til við að fyrirbyggja sýkingar, draga úr þörf fyrir sýklalyf og minnka líkurnar á að ónæmar örverur þróist.
„Einfaldar reglur við matreiðslu geta hlíft okkur við ofurbakteríum. Ég sýni helstu atriðin á einni mynd til að minna okkur á hvað þarf að hreinsa fyrir matseld: Hendur, áhöld, borðfleti og grænmeti. Smávaxið hreinsunarteymi sér um hvert atriði til að hjálpa okkur að njóta betri heilsu.“